Ingunn L Hannesdóttir hefur barist við aukakílóin frá 14 ára aldri og prufað allt mögulegt en í fyrsta sinn í yfir 40 ár hefur hún náð varanlegum árangri. Hún hefur byggt sig upp andlega og losað sig við 26 kíló með sjálfsvinnu í
LMLP prógramminu. Og ekki nóg með það, þá hefur eiginmaður hennar tileinkað sér fræðin sem hún lærir hjá Lindu og losað sig við annað eins. Á einu ári eru hjónin 50 kílóum léttari!
Ingunn er hvergi hætt og segir þér frá því hvernig hún hefur náð þessum frábæra árangri.