Netnámskeið: 5 atriði í netrekstri -frá hugmynd til fyrstu tekna

5 atriði í netrekstri: frá hugmynd til fyrstu tekna er um hálfsdags námskeið með Lindu Pé, fyrir þá aðila sem vilja byggja upp eigið fyrirtæki á netinu en eru óviss um hvar og hvernig best er að byrja.
Námskeiðið er opið öllum kynjum.

Á námskeiðinu förum við yfir þau atriði sem skipta mestu máli í upphafi — svo þú getir lagt skýran og traustan grunn að fyrirtæki þínu á netinu. Markmiðið er að þú í lok námskeiðsins fáir þú betri yfirsýn, sért með skýrari áætlun um næstu skref til að koma þér og þjónustu þinni á framfæri- og skapa fyrstu tekjurnar.

Dags:Laugardagurinn 21. mars
Tími:kl. 09.00-13.00
Staður:Á netinu (zoom).